Harry Potter
bresk bókasería eftir J.K. Rowling / From Wikipedia, the free encyclopedia
Harry Potter er söguhetja úr bókum eftir enska rithöfundinn J.K. Rowling. Bækurnar fjalla um ungan galdramann, Harry Potter, og vini hans Ron Weasley og Hermione Granger, sem öll stunda nám við Hogwarts skóla galdra og seiða. Aðalsöguþráðurinn gengur út á tilraunir illa galdramannsins Voldemorts til að ná völdum í heimi galdramanna og baráttu Harry Potter og vina hans gegn því. Sögurnar um Harry Potter gerast í hliðarveröld þar sem venjulegt fólk (sem galdramenn nefna mugga í bókunum) veit ekki af galdraheiminum sem er eins konar huliðsheimur allt í kring um hinn hefðbundna heim. Æðstu völd í galdraheiminum eru í höndum Galdramálaráðuneytis.
Bækurnar um Harry Potter komu fyrst út hjá bókaútgáfunni Bloomsbury í Bretlandi og Scholastic Press í Bandaríkjunum og komu út frá 1997 til 2007. Sögurnar blanda saman þáttum úr mörgum hefðbundum bókmenntagreinum, eins og fantasíum, þroskasögum, spennusögum, breskum skólasögum og ástarsögum. Rowling hefur sagt að meginviðfangsefni bókanna sé dauðinn.[1]
Upprunalegu sjö bækurnar voru kvikmyndaðar í átta hlutum af Warner Bros. og sýndar frá 2001 til 2011. Í kjölfarið hafa fylgt fleiri bækur og kvikmyndir sem gerast í sama söguheimi og tengjast upprunalegu bókunum á ýmsan hátt. Árið 2016 var heildarvirði Harry Potter-sérleyfisins metið á 25 milljarða dala.[2] Harry Potter er eitt tekjuhæsta miðlunarsérleyfi sögunnar. Skemmtigarðar undir nafninu The Wizarding World of Harry Potter hafa verið settir upp í Bandaríkjunum, Kína og Japan.