From Wikipedia, the free encyclopedia
Séra Haraldur Níelsson (30. nóvember 1868 – 1928) var prófessor við Háskóla Íslands og um tíma dómkirkjuprestur. Haraldur er þó einna helst þekktur fyrir biblíuþýðingar sínar.
Haraldur fæddist á Grímsstöðum á Mýrum. Faðir hans var Níels Eyjólfsson og móðir hans var Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja, dóttir Sveins prófasts á Staðastað, hálfsystir Hallgríms biskups og frú Elísabetar konu Björns ráðherra. Haraldur lauk stúdentsprófi frá Latínuskólanum og embættisprófi í guðfræði frá Kaupmannahafnarháskóla. Eftir að hann kom heim vann hann að biblíuþýðingunni sleitulaust að kalla í 11 ár. Þá var hann kennari við Prestaskólann og vígður prestur Holdsveikraspítalans í Laugarnesi.
Haraldur varð síðar prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík, en sagði starfinu lausu vegna veikinda í hálsi og tók aftur við kennslu í Prestaskólanum. Hann var síðan prófessor við Háskóla Íslands til æviloka og var rektor skólans frá 1916-1917 og 1927-1928. Síðustu 14 æviárin hélt hann uppi frjálsum guðsþjónustum í Fríkirkjunni í Reykjavík annan hvorn helgan dag, við mikinn orðstír. Haraldur var varaforseti Sálarrannsóknafélags Íslands frá stofnun þess til æviloka.
Fyrri kona Haralds var Bergljót Sigurðardóttir prófasts Gunnarssonar. Hún lést eftir 15 ára hjónaband. Síðari kona hans var Aðalbjörg Sigurðardóttir kennari og forystukona í ýmsum kvennasamtökum, s.s. Kvenréttindafélagi Íslands og Kvenfélagasambandi Íslands.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.