verslunarkeðja From Wikipedia, the free encyclopedia
Hagkaup eru íslenskt smásölufyrirtæki í eigu Haga sem selur matvörur, fatnað, raftæki, afþreyingarefni og leikföng. Hagkaup eru með átta verslanir á Íslandi, þar af sex á höfuðborgarsvæðinu. Í Hagkaupum starfa 700-750 manns. Framkvæmdastjóri er Sigurður Reynaldsson. Hagkaup segjast reka stærstu verslun landsins í Smáralind.[1]
Hagkaup voru upphaflega stofnuð af Pálma Jónssyni (sem oftast var nefndur Pálmi í Hagkaup) árið 1959. Árið 1967 opnaði hann fyrstu Hagkaupaverslunina við Miklatorg í Reykjavík.
Jólin 2008 buðu Hagkaup viðskiptavinum sínum að taka lán til hálfs árs á 3% vöxtum fyrir þeim vörum sem þeir töldu sig vanta. Þetta var gert að sögn forsvarsmanna Hagkaupa til þess að koma til móts við þá sem höfðu lítið milli handanna sökum efnahagskreppunnar. Um sjö hundruð manns tóku slík lán þrátt fyrir að umboðsmaður Alþingis hafi varað við þeim.[2]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.