H. H. Asquith
Forsætisráðherra Bretlands (1852-1928) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Herbert Henry Asquith, 1. jarlinn af Oxford og Asquith (12. september 1852 – 15. febrúar 1928), yfirleitt kallaður H. H. Asquith, var breskur stjórnmálamaður úr Frjálslynda flokknum sem var forsætisráðherra Bretlands frá 1908 til 1916. Hann var síðasti breski forsætisráðherrann sem fór fyrir meirihlutastjórn Frjálslynda flokksins og hann fór fyrir stórtækum umbótum og lagasetningum um ríkisvelferð. Í ágúst árið 1914 leiddi Asquith Bretland inn í fyrri heimsstyrjöldina en sagði af sér vegna stjórnardeilna í desember árið 1916 og stríðsmálaráðherra hans, David Lloyd George, varð forsætisráðherra í hans stað.
Staðreyndir strax Herbert Henry Asquith, Forsætisráðherra Bretlands ...
Herbert Henry Asquith | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 5. apríl 1908 – 6. desember 1916 | |
Þjóðhöfðingi | Játvarður 7. Georg 5. |
Forveri | Henry Campbell-Bannerman |
Eftirmaður | David Lloyd George |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 12. september 1852 Morley, West Riding of Yorkshire, Englandi |
Látinn | 15. febrúar 1928 (75 ára) Sutton Courtenay, Berkshire, Englandi |
Stjórnmálaflokkur | Frjálslyndi flokkurinn |
Maki | Helen Melland
(frá 1877 til dauða hennar 1891), Margot Tennant (frá 1894 til dauða hans 1928) |
Börn | 10, þ. á m. Raymond, Herbert, Arthur, Violet, Cyril, Elizabeth, og Anthony |
Starf | Lögfræðingur, stjórnmálamaður |
Þekktur fyrir | Að vera forsætisráðherra Bretlands í byrjun fyrri heimsstyrjaldarinnar |
Undirskrift |
Loka