David Lloyd George
Forsætisráðherra Bretlands (1863–1945) / From Wikipedia, the free encyclopedia
David Lloyd George (17. janúar 1863 – 26. mars 1945) var breskur stjórnmálamaður úr Frjálslynda flokknum. Sem fjármálaráðherra Bretlands á árunum 1908 – 1915 bar Lloyd George ábyrgð á ýmsum umbótum sem renndu stoðum undir uppbyggingu bresks velferðarríkis. Mikilvægasta hlutverk hans var þó sem forsætisráðherra Bretlands í samsteypustjórn á árunum 1916 – 1922 í og eftir fyrri heimsstyrjöldina. Hann gegndi lykilhlutverki á friðarráðstefnunni í París árið 1919 þar sem Evrópa var endurskipulögð eftir ósigur Miðveldanna.
David Lloyd George | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 6. desember 1916 – 19. október 1922 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 5. |
Forveri | H. H. Asquith |
Eftirmaður | Bonar Law |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 17. janúar 1863 Chorlton-on-Medlock, Manchester, Englandi |
Látinn | 26. mars 1945 (82 ára) Tŷ Newydd, Caernarfonshire, Wales |
Stjórnmálaflokkur | Frjálslyndi flokkurinn |
Maki | Margaret Owen (1888 – 1941) Frances Stevenson (1943 - 1945) |
Börn | Richard Lloyd George, Mair Eluned Lloyd George, Gwilym Lloyd George, Lady Olwen Evans, Megan Lloyd George |
Starf | Stjórnmálamaður |
Þekktur fyrir | Að vera forsætisráðherra Bretlands í fyrri heimsstyrjöldinni |
Undirskrift |
Sem forsætisráðherra samsteypustjórnar eftir kosningarnar árið 1918 gaf Lloyd George Íhaldsmönnum flest ráðuneyti svo að Frjálslyndi flokkurinn sem hann var sjálfur hluti af varð í minnihluta. Hann varð formaður flokksins seint á þriðja áratugnum en á þeim tíma mátti flokkurinn líða fylgishrun eftir því sem ágreiningur jókst innan hans. Þegar kom á fjórða áratug var Lloyd George valdalítill og rúinn trausti, sérstaklega þegar seinni heimsstyrjöldin byrjaði og hann var vændur um að hafa meiri samúð með Þýskalandi en með bandamönnunum.
Lloyd George er eini forsætisráðherra Bretlands sem hefur verið velskur og talað velsku að móðurmáli.[1]