![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0b/Guizhou_in_China_%2528%252Ball_claims_hatched%2529.svg/langis-640px-Guizhou_in_China_%2528%252Ball_claims_hatched%2529.svg.png&w=640&q=50)
Guizhou
hérað í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Guizhou (eða Kweichow) (kínverska: 贵州; rómönskun: Guìzhōu) er landlukt fjallahérað í suðvestur-Kína. Það liggur við austurenda Yungui hásléttunnar og er hálent í vestri og miðju. Héraðið á mörk að sjálfstjórnarsvæðinu Guangxi í suðri, Yunnan í vestri, Sichuan í norðvestri, risaborginni Chongqing í norðri og Hunan héraði í austri.
![Kort sem sýnir legu héraðsins Guizhou í suðvestur-Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0b/Guizhou_in_China_%28%2Ball_claims_hatched%29.svg/640px-Guizhou_in_China_%28%2Ball_claims_hatched%29.svg.png)
Íbúar höfuðborgarinnar Guiyang sem liggur í miðhluta Guizhou héraðs voru árið 2016 um 4,7 milljónir.
Samkvæmt manntali Kína sem framkvæmt var árið 2020, bjuggu 38,6 milljónir í Guizhou héraði.
Lýðfræðilega séð er það eitt fjölbreyttasta hérað Kína. Minnihlutahópar telja meira en 37 prósent íbúanna, þar á meðal af þjóðarbrotum Miao, Bouyei, Dong, Tujia og Yi sem tala tungumál frábrugðin kínversku. Eitt helsta tungumálið í Guizhou er afbrigði af mandarín tungumálinu.
Dian-konungsdæmið, sem byggði núverandi landsvæði Guizhou, var innlimað af Han-ættinni árið 106 f.Kr. Guizhou var síðan formlega gert að héraði árið 1413 á valdatíma Ming-ættarinnar.
Ólíkt mörgum öðrum héruðum Kína hefur Guizhou ekki notið verulegs ávinnings af efnahagsumbótum síðari ára. Héraðið er þó ríkt af náttúrulegum, menningarlegum og umhverfislegum auðlindum. Skógrækt, orku- og námuvinnsla er mikilvægur hluti af efnahag héraðsins. En þrátt fyrir það er Guizhou álitið fremur fátækt og efnahagslega vanþróað hérað. Kínversk stjórnvöld hafa horft til Guizhou til að þróa gagnaver.