![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/94/%25E9%2587%258D%25E5%25BA%2586%25E5%25B8%2582%25E6%25B8%259D%25E4%25B8%25AD%25E5%258C%25BA%25E5%258D%258A%25E5%25B2%259B.jpg/640px-%25E9%2587%258D%25E5%25BA%2586%25E5%25B8%2582%25E6%25B8%259D%25E4%25B8%25AD%25E5%258C%25BA%25E5%258D%258A%25E5%25B2%259B.jpg&w=640&q=50)
Chongqing
borghérað í suðvestur-miðhluta Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Chongqing (eða Chungking) (kínverska: 重庆; rómönskun: Chóngqìng), er borghérað í suðvestur-miðhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Borgin er mikilvæg fljótahöfn og samgöngumiðstöð. Hún er mennta-, vísinda-, fjármála-, verslunar- og iðnaðarmiðstöð efra vatnasvæðis hins mikla Jangtse fljóts. Í seinna stríði Kína og Japans (1937–45) var hún höfuðborg Lýðveldisins Kína.
Chongqing
重庆 | |
---|---|
![]() Skýjakljúfar Yuzhong hverfis Chongqing borgar. Árið 2020 var heildaríbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar 32,1 milljónir. | |
Hnit: 29°33′49″N 106°33′01″A | |
Land | ![]() |
Stofnun | U. þ. b. 316 f.Kr. |
Stjórnarfar | |
• Flokksritari | Yuan Jiajun |
• Borgarstjóri | Hu Henghua |
Flatarmál | |
• Sveitarfélagið | 82.403 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 244 m |
Hæsti punktur (Yintiao Ling) | 2.797 m |
Mannfjöldi (2020) | |
• Sveitarfélagið | 32.054.159[1] |
• Þéttleiki | 390/km2 |
• Stórborgarsvæði | 22.251.500[2] |
Tímabelti | UTC+08:00 |
Póstnúmer | 4000 00 – 4099 00 |
Svæðisnúmer | 23 |
Vefsíða | cq |
Chongqing (sem þýðir „tvöföld vegsömun“) sem var undir stjórn Sichuan héraðs var árið 1997 aðskilin frá héraðinu og gerð að sérstöku borghéraði, því fjórða (á eftir Beijing, Sjanghæ og Tianjin). Á þeim tíma var allur austurhluti Sichuan, aðliggjandi sveitir og borgir, felldur inn í sveitarfélagið sem stækkaði mjög að landsvæði og íbúafjölda.
Samkvæmt kínverska manntalinu árið 2020 bjuggu í borgarkjarna Chongqing 9,6 milljónir manna en heildaríbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar var 32,1 milljónir.