![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/ba/Flag_of_Germany.svg/langis-640px-Flag_of_Germany.svg.png&w=640&q=50)
Fáni Þýskalands
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þýski fáninn er þjóðfáni Þýskalands. Litir fánans komu fyrst fram 1152 við krýningu Friedrich I (kallaður Barbarossa) til keisara í Frankfurt am Main. Fáni þessi var notaður til 1806, er þýska keisararíkið var lagt niður á valdatíma Napoleons. Á þjóðþinginu í Frankfurt am Main 1848 var fáninn aftur tekinn í notkun með orðunum: „Aus Nacht, durch Blut, zum Licht.“ (Úr nóttinni, með blóði, til ljóssins). Seinna var líka sagt: „Svört er nóttin, rautt er stríðið (blóðið), gullin er framtíðin.“
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/ba/Flag_of_Germany.svg/640px-Flag_of_Germany.svg.png)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/fb/Flag_of_Germany_%28state%29.svg/640px-Flag_of_Germany_%28state%29.svg.png)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3e/Naval_Ensign_of_Germany.svg/640px-Naval_Ensign_of_Germany.svg.png)
Bismarck lagði þennan fána niður og notaði annan á tímum Prússlands. Þrílita fáninn var hins vegar aftur tekinn í notkun í Weimar-lýðveldinu 1919-1933, en þá tók Hitler sig til og umbreytti fánum og merkjum ríkisins. Loks varð þrílita fáninn að þjóðfána Þýskalands við stofnun sambandslýðveldins 1949.
Það má geta þess að Austur-Þýskaland notaði sama fána við stofnun þess lands 1949, en árið 1959 var skjaldarmerki ríkisins bætt í miðju hans, hringlaga merki með hamri og sirkli umkringdu rúgöxum. Við sameiningu landanna beggja 1990 var austur-þýski fáninn lagður niður og núverandi þrílita fáni látinn gilda fyrir sameinað Þýskaland.