![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c8/Falco_rusticolus_white_cropped.jpg/640px-Falco_rusticolus_white_cropped.jpg&w=640&q=50)
Fálki
From Wikipedia, the free encyclopedia
Fálki (eða valur) (fræðiheiti: Falco rusticolus) er stór ránfugl í fálkaættkvíslinni sem heldur til í freðmýrum og fjalllendi sem og við strendur og eyjur á Norðurslóðum. Fálkar geta náð 60 cm lengd og vænghaf þeirra getur orðið 130 sm. Lögun og gerð vængja fálka gerir þeim kleift að fljúga óhemju hratt. Á miðöldum voru fálkar taldir fuglar konunga. Þeir eru notaðir í sérstaka íþrótt, fálkaveiðar, sem var áður fyrr nánast eingöngu stunduð af konungum og aðli og voru slíkir fálkar nefndir slagfálkar.
Staðreyndir strax Ástand stofns, Vísindaleg flokkun ...
Fálki | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Íslenskur fálki (Falco rusticolus islandicus) | ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Falco rusticolus Linnaeus, 1758 | ||||||||||||||
Loka
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9a/Falco_rusticolus_distr.png/640px-Falco_rusticolus_distr.png)
Íslenski fálkinn (fræðiheiti: Falco rusticolus islandicus) er ein deilitegund fálka. Önnur deilitegund er hvítfálkinn (Falco rusticolus candicans) sem verpir meðal annars á Grænlandi.