Franskur örverufræðingur og lífefnafræðingur From Wikipedia, the free encyclopedia
Emmanuelle Marie Charpentier (f. 11. desember 1968) er franskur örverufræðingur, erfðafræðingur og lífefnafræðingur. Hún vann til Nóbelsverðlauna í efnafræði árið 2020 ásamt Jennifer Doudna fyrir þróun þeirra á CRISPR-erfðatækninni. Charpentier er meðlimur í frönsku vísindaakademíunni og frönsku tækniakademíunni.
Örverufræði, lífefnafræði 20. og 21. öld | |
---|---|
Nafn: | Emmanuelle Charpentier |
Fædd: | 11. desember 1968
|
Svið: | Örverufræði, lífefnafræði, erfðafræði |
Markverðar uppgötvanir: |
CRISPR |
Alma mater: | Háskóli Pierre og Marie Curie Pasteur-stofnunin |
Helstu vinnustaðir: |
Læknisfræðiskólinn í Hanover Max Planck-smitrannsóknastofnunin Háskólinn í Umeå Vínarháskóli |
Verðlaun og nafnbætur: |
Wolf-verðlaunin í læknisfræði (2020) Nóbelsverðlaunin í efnafræði (2020) |
Emmanuelle Charpentier nam lífefnafræði og örverufræði við Pasteur-stofnunina frá 1992 til 1995. Hún útskrifaðist árið 1995 með doktorsgráðu í örverufræði frá Háskóla Pierre og Marie Curie árið 1995. Frá árinu 1995 vann hún nýdoktorsrannsóknir í Bandaríkjunum við Rockefeller-háskóla í New York, við læknadeild New York-háskóla, við Skirball-stofnunina í New York og við Rannsóknarbarnaspítala Heilagrar Júttu í Memphis.[1]
Árið 2002 réð formaður rannsóknarhóps Charpentier sem gestaprófessor og síðan lektor við Vínarháskóla í Austurríki og hélt hún þeirri stöðu til ársins 2009. Árið 2009 var hún ráðin dósent við Háskólann í Umeå og stýrði þar rannsóknarteymi.
Árið 2013 varð hún prófessor við læknisfræðiskólann í Hanover og við smitrannsóknastofnunina í Brúnsvík í Þýskalandi.
Árið 2014 vann Charpentier til Alexander von Humboldt-prófessorsverðlaunanna. Hún hefur síðan þá unnið hjá þremur stofnunum; í Umeå, Hanover og Brúnsvík.[2]
Í apríl árið 2014 tilkynnti félagið CRISPR Therapeutics, sem Charpentier stofnaði ásamt Rodger Novak og Shaun Foy, að það hefði aflað 25 milljarða Bandaríkjadala til að þróa erfðabreytingatækni á grundvelli CRISPR-Cas9-tækninnar í lækningaskyni.[3][4][5]
Árið 2015 var Emmanuelle Charpentier ráðin sem framkvæmdastjóri Max Planck-stofnunarinnar fyrir smitfræði í Berlín. Frá 2018 hefur hún verið framkvæmdastjóri Max Planck-rannsóknarmiðstöðvarinnar í sýklavísindum.
Emmanuelle Charpentier vinnur við stýringu á genatjáningu frá sjónarhorni ríbósakjarnsýra og við sameindagrundvöll smitunar. Hún hefur einnig fengist við rannsóknir á því hvernig gerlar berjast gegn sýkingum.
Hún varð heimsfræg með því að greina hlutverk próteinsins Cas9 í ónæmiskerfi tiltekinna gerla. Hún fann jafnframt upp CRISPR/Cas9-erfðatæknina ásamt Jennifer Doudna, sem hefur gerbylt sviði erfðatækninnar.[6] Fyrir þessa uppgötvun hefur Charpentier unnið til fjöldra mikilsvirtra verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal Nóbelsverðlaunanna í efnafræði árið 2020.[7]
Emmanuelle Charpentier fæddist í úthverfunum sunnan við París. Hún á tvær eldri systur.[8]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.