Elizabeth Warren
Bandarískur stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Elizabeth Ann Warren (f. undir nafninu Herring 22. júní 1949) er bandarískur stjórnmálamaður sem hefur setið á öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Massachusetts-fylki frá árinu 2013. Warren er meðlimur í Demókrataflokknum og er gjarnan talin til framfarasinnaðari og vinstrisinnaðari meðlima hans. Sem öldungadeildarþingmaður hefur Warren talað fyrir neytendavernd, fjárhagsaðstoð og samfélagsvelferð og hefur auk þess stutt það að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði ákærður fyrir embættisbrot.[1] Warren var frambjóðandi í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar 2020.[2]
Staðreyndir strax Öldungadeildarþingmaður fyrir Massachusetts, Forveri ...
Elizabeth Warren | |
---|---|
Öldungadeildarþingmaður fyrir Massachusetts | |
Núverandi | |
Tók við embætti 3. janúar 2013 | |
Forveri | Scott Brown |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 22. júní 1949 (1949-06-22) (75 ára) Oklahomaborg, Oklahoma, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarísk |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkurinn (1996–) |
Maki | Jim Warren (g. 1968; skilin 1978) Bruce H. Mann (g. 1980) |
Börn | 2 |
Háskóli | George Washington-háskóli Háskólinn í Houston Rutgers-lagaskóli |
Undirskrift |
Loka