Einir
Trjátegund í flokki barrtrjáa / From Wikipedia, the free encyclopedia
„Einir“ getur einnig átt við mannsnafnið Eini.
Einir (einitré eða einirunni) (fræðiheiti: Juniperus communis) er runni af ættkvísl Juniperus og einisætt. Einir er útbreiddastur allra trjáplantna heims og finnst um allt norðurhvel jarðar, í Norður-Ameríku, Asíu og Evrópu á kaldtempruðum norðlægum breiddargráðum.
Staðreyndir strax Ástand stofns, Vísindaleg flokkun ...
Einir | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Juniperus communis L. | ||||||||||||||
Útbreiðsla á heimsvísu | ||||||||||||||
Loka
Einirinn er með nálarlaga blöð, u.þ.b. 10 mm löng. Hér á landi vex einirinn í hrauni, kjarri og mólendi. Einirunnar eru oftast jarðlægir, en sumir runnar reisa upp greinarnar og geta þá orðið allt að 120 cm háir. Utan Íslands getur hann verið beinvaxinn og allt að 10 metrar.
Fyrst þegar einiberið myndast er það grænt, en verður dökkblátt þegar það er orðið fullþroskað. Úr einiberjum er víða unnið Genever (=Sjenever eða gin).