David Trimble
Norður-írskur stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
William David Trimble, Trimble barón (15. október 1944 – 25. júlí 2022) var norður-írskur stjórnmálamaður sem var fyrsti ráðherra heimastjórnar Norður-Írlands, fyrstur manna, frá 1998 til 2002. Trimble var leiðtogi Sambandsflokks Ulster, sem aðhyllist áframhaldandi aðild Norður-Írlands að breska konungdæminu, frá 1995 til 2005. Árið 1998 var Trimble, ásamt John Hume, sæmdur friðarverðlaunum Nóbels fyrir að vinna að gerð Föstudagssáttmálans, sem batt enda á átökin á Norður-Írlandi milli sambandssinna og lýðveldissinna.[1]
Staðreyndir strax Fyrsti ráðherra Norður-Írlands, Forveri ...
David Trimble | |
---|---|
Fyrsti ráðherra Norður-Írlands | |
Í embætti 1. júlí 1998 – 14. október 2002 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Ian Paisley (2007) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 15. október 1944 Bangor, Norður-Írlandi, Bretlandi |
Látinn | 25. júlí 2022 (77 ára) Belfast, Norður-Írlandi, Bretlandi |
Þjóðerni | Breskur (norður-írskur) |
Stjórnmálaflokkur | Sambandsflokkur Ulster (fyrir 1973; 1978–2005) Íhaldsflokkurinn (2007–) |
Maki | Heather McComb (1968–1976) Daphne Orr (1978–) |
Börn | 4 |
Háskóli | Drottningarháskólinn í Belfast |
Starf | Lögfræðingur, kennari, stjórnmálamaður |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1998) |
Loka