Bergdís Ellertsdóttir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bergdís Ellertsdóttir (f. 1962) er núverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Hún var fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum frá 2018 til 2019.[1] Hún hóf störf hjá utanríkisráðuneyti Íslands árið 1991 og hefur síðan þá unnið á fjölda vettvanga, meðal annars hjá NATÓ, EFTA og Evrópusambandinu. Hún hefur einnig gegnt stöðu sendiherra Íslands í Belgíu, Hollandi, Lúxemborg, Sviss og San Marínó.[2] Frá 1. júlí 2019 hefur hún verið sendiherra í Bandaríkjunum.[3]
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/fd/Bergd%C3%ADs_Ellertsd%C3%B3ttir_in_2019.jpg/220px-Bergd%C3%ADs_Ellertsd%C3%B3ttir_in_2019.jpg)