Alþingiskosningar 2009
From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþingiskosningar voru haldnar 25. apríl 2009.[1][2][3] Á kjörskrá voru 227.896 kjósendur, þar af konur 114.295 en karlar 113.601.[4] Atkvæði greiddu 193.934 og var kjörsókn því 85,1%. [5] Samfylkingin fékk flest atkvæði 29,8% og 20 þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei fengið minna kjörfylgi í sögu sinni 23,7%, tapaði 12,9% frá fyrri kosningum og 10 þingmönnum, er nú með 16 þingmenn. Framsóknarflokkurinn fékk 14,8% fylgi - nokkru betra fylgi en skoðanakannanir höfðu spáð - og bættu við sig tveimur þingmönnum, hafa nú níu þingmenn. Vinstrihreyfingin – grænt framboð fékk 21,7% atkvæða, bætti við sig fimm þingmönnum og er nú með 14 þingmenn er það mesta fylgi við flokkinn í tíu ára sögu hans. Frjálslyndi flokkurinn fékk eingöngu 2,2% fylgi en það dugði ekki til að fá þingmann inn, flokkurinn er því utan þings. Borgarahreyfingin sem var stofnuð stuttu fyrir kosningarnar fékk fjóra þingmenn kosna eða 7,2% fylgi. Lýðræðishreyfingin fékk 0,6% og virðist ekki hafa verið tekin alvarlega af kjósendum. Nokkur umræða hefur verið um að þrír stjórnmálaflokkar, sem saman mynda meirihluta hafa lýst því yfir að þeir styðji samningsviðræður um inngöngu Íslands í Evrópusambandið.[6]
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
63 sæti á Alþingi 32 sæti þarf fyrir meirihluta | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Kjörsókn: 85,1% 1,5% | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hér eru skráðir þeir flokkar sem náðu manni á þing.
|
Kosningarnar voru fyrir margra hluta sakir sögulegar. Af 63 þingmönnum voru 27 nýir þingmenn kosnir til Alþingis og er það mesta endurnýjun á milli kosninga í sögu íslenska lýðveldisins. Konur á Alþingi voru 26 talsins eða 43% sem var hæsta hlutfall kvenna á þingi fram að þessu. Átta þingmenn, sem sóttust eftir endurkjöri og voru ofarlega á framboðslistum, náðu ekki endurkjöri. Aldrei hafa fleiri skilað auðu á kosningum eða 3,2%.[7] Samkvæmt skoðanakönnun sem unnin var af Gallup gerði ríflega fjórðungur kjósenda upp hug sinn um hvað þeir ætluðu að kjósa á kjördeginum sjálfum.[8]
Vegna aðildar að Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) var eftirlitsmönnum frá stofnuninni boðið af íslensku fastanefndinni við hana að hafa eftirlit með kosningum á Íslandi.[9] Skömmu seinna ákvað ÖSE að rétt væri að stofnuninn sendi eftirlitsmenn og er það í fyrsta skipti sem ÖSE hefur eftirlit með kosningum á Íslandi. Í tengslum við kosningarnar á sérstaklega að gefa gaum að kosningalöggjöfinni og hugsanlegum breytingum á henni, utankjörfundaratkvæðagreiðslu, fjölmiðlamálum og aðgangi eftirlitsmanna.[10] Tíu starfsmenn á vegum ÖSE störfuðu á Íslandi og skiluðu af sér skýrslu að kosningunum loknum.[11]