franskur höfundur og heimspekingur (1913-1960) From Wikipedia, the free encyclopedia
Albert Camus (7. eða 8. nóvember 1913 – 4. janúar 1960) var franskur höfundur og heimspekingur, hann er oft kenndur við tilvistarstefnuna þótt svo að hafa kallað sjálfan sig fáránleikasinna. Hann var næst yngsti nóbelsverðlaunahafi fyrir bókmenntir þegar hann hlaut þau árið 1957 (áður var sá yngsti Rudyard Kipling). Hann var einnig skammlífastur af handhöfum nóbelsverðlauna fyrir bókmenntir og er það enn í dag.
Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar | |
---|---|
Nafn: | Albert Camus |
Fæddur: | 7. eða 8. nóvember 1913 |
Látinn: | 4. janúar 1960 (46 ára) |
Skóli/hefð: | Meginlandsheimspeki |
Helstu ritverk: | Útlendingurinn |
Helstu viðfangsefni: | Tilvistarstefna |
Áhrifavaldar: | Friedrich Nietzsche, Jean-Paul Sartre, Victor Hugo, George Orwell |
Hafði áhrif á: | Jean-Paul Sartre |
Camus fæddist við sára fátækt í Alsír og missti hann föður sinn í fyrri heimsstyrjöldinni. Með aðstoð leiðbeinanda að nafni Louis Germain komst hann í Háskóla Alsír. Hann greindist snemma með berkla og gat af þeim sökum ekki fengið að kenna eins og hann óskaði, einnig varð hann að hætta íþróttaiðkun sinni sem hann hafði stundað af kappi. Hann útskrifaðist með BA í heimspeki og því sem samsvarar M.A. í heimspeki með lokaritgerð um Plótínos.
Í síðari heimsstyrjöldinni tók hann fyrst afstöðu sem friðarsinni (hann hafði ekki verið kvaddur í herinn vegna berkla), en eftir að verða vitni af aftöku Gabriel Peri, snéri hann blaðinu við og gekk í frönsku mótspyrnuna. Á stríðsárunum tók hann þátt í útgáfu áróðursrits að nafni Combat og gaf út tvær af sínum frægustu bókum, Le Mythe de Sisyphe og L'Étranger.
Hann dó árið 1960 í bílslysi nálægt Sens. Hann lét eftir sig tvíburadætur að nafni Catherine and Jean, þær eiga höfundarrétt að verkum hans enn í dag.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.