Árið 1682 (MDCLXXXII í rómverskum tölum) var 82. ár 17. aldar sem hófst á fimmtudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en sunnudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
- 7. apríl - Landkönnuðurinn René-Robert Cavelier de La Salle kom að ósum Mississippifljóts.
- 27. apríl - Pétur mikli var krýndur Rússakeisari tíu ára gamall, ásamt hálfbróður sínum Ívan 5..
- 6. maí - Loðvík 14. flutti með frönsku hirðina til Versala frá Tuileries.
- 11. maí - Streltsiuppreisnin átti sér stað í Moskvu.
- 19. júlí - Jósúa mikli tók við af föður sínum Jóhannesi 1. sem Eþíópíukeisari.
- September - Edmund Halley fylgdist með halastjörnu og hélt því þá fram að hún væri sama halastjarnan og áður hefði sést 1531 og 1607.
- 27. október - Borgin Philadelphia var stofnuð í Norður-Ameríku af William Penn.
Ódagsettir atburðir
- Hannes Þorleifsson, konunglegur fornfræðingur, safnaði handritum á Íslandi um sumarið en skip hans fórst um haustið undan Langanesi á leiðinni til Danmerkur.
- 3. apríl - Bartolomé Esteban Murillo, spænskur listmálari (f. 1618).
- 7. maí - Fjodor 3. Rússakeisari (f. 1661).
- 12. júlí - Jean Picard, franskur stjörnufræðingur (f. 1620).
- 19. október - Thomas Browne, enskur læknir (f. 1605).
- 19. nóvember - Róbert Rínarfursti, þýskur herforingi (f. 1619).
- 23. nóvember - Claude Lorrain, franskur listmálari (f. um 1600).
- 18. desember - Guðríður Símonardóttir (Tyrkja-Gudda) (f. 1598).
Opinberar aftökur
- Jón Þorsteinsson, vinnumaður í Arnardal fremra, hálshogginn á Alþingi, fyrir morð á Adrian Jensson Munck.
- 4. júlí - Jón Pétursson, ættaður úr Önundarfirði í Ísafjarðarsýslu, hengdur á Alþingi fyrir þjófnað.
- Ónafngreind kona og ónafngreindur karl tekin af lífi í Norðlendingafjórðungi fyrir dulsmál.[1]
Ódagsett
- Jóhannes 1. Eþíópíukeisari.
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.