Úkraína
ríki í Mið- og Austur-Evrópu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Úkraína (úkraínska: Україна/Úkrajína) er land í Austur-Evrópu. Úkraína er næststærsta Evrópulandið á eftir Rússlandi. Landið á landamæri að Rússlandi í austri og norðaustri, Hvíta-Rússlandi í norðri og Póllandi, Slóvakíu, Ungverjalandi, Rúmeníu og Moldóvu í vestri. Úkraína á strönd að Svartahafi og Asovshafi í suðri. Landið er rúmir 600 þúsund km² að stærð með rúmlega 40 milljón íbúa. Það er 8. fjölmennasta land Evrópu. Kænugarður er stærsta borgin og höfuðborg landsins.
Úkraína | |
Україна (Úkrajína) | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Derzjavnyj Hímn Úkrajíny | |
Höfuðborg | Kænugarður |
Opinbert tungumál | Úkraínska |
Stjórnarfar | Forsetaþingræði |
Forseti | Volodymyr Zelenskyj |
Forsætisráðherra | Denys Sjmyhal |
Þingforseti | Rúslan Stefantsjúk |
Sjálfstæði | frá Sovétríkjunum |
• Yfirlýst | 24. ágúst 1991 |
• Þjóðaratkvæðagreiðsla | 1. desember 1991 |
• Staðfest | 25. desember 1991 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
45. sæti 603.628 km² 7 |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
27. sæti 41.362.393 74/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 429,947 millj. dala (48. sæti) |
• Á mann | 10.310 dalir (108. sæti) |
VÞL (2019) | 0.779 (74. sæti) |
Gjaldmiðill | hrinja, гривня (UAH) |
Tímabelti | UTC+2 (+3 á sumrin) |
Þjóðarlén | .ua |
Landsnúmer | +380 |
Ummerki um mannabyggð þar sem Úkraína er nú eru allt að 34.000 ára gömul. Á miðöldum var landið miðstöð menningar Austur-Slava og varð hluti af Garðaríki. Garðaríki klofnaði í mörg minni furstadæmi á 13. öld, og eftir innrásir Mongóla tókust ýmsar þjóðir á um yfirráð yfir landinu, þar á meðal Pólsk-litháíska samveldið, Tyrkjaveldi og Rússneska keisaradæmið. Höfuðsmannsdæmi kósakka var stofnað þar á 17. öld, en landinu var á endanum skipt milli Póllands og Rússlands. Í kjölfar rússnesku byltingarinnar 1917 var Alþýðulýðveldið Úkraína stofnað. Það reyndist skammlíft og eftir síðari heimsstyrjöld varð vesturhluti þess Sovétlýðveldið Úkraína sem hluti af Sovétríkjunum. Sovétlýðveldið lýsti yfir sjálfstæði við upplausn Sovétríkjanna 1991.
Eftir að landið fékk sjálfstæði lýsti Úkraína yfir hlutleysi í alþjóðamálum,[1] en átti þátt í stofnun Samveldis sjálfstæðra ríkja auk þess að hefja hernaðarsamstarf við Atlantshafsbandalagið 1994. Árið 2013 ákvað forseti Úkraínu, Víktor Janúkovytsj sem tilheyrði rússneska minnihlutanum í landinu, að slíta samstarfssamningi við Evrópusambandið og mynda nánari tengsl við Rússland. Þetta leiddi til mótmæla og að lokum var honum steypt af stóli. Í kjölfarið innlimaði Rússland Krímskaga eftir að hafa sent þangað herlið og haldið atkvæðagreiðslu. Rússneskumælandi héruð í Donbas í austurhluta Úkraínu lýstu í kjölfar yfir sjálfstæði og hafa barist gegn úkraínskum stjórnvöldum með aðstoð Rússa síðan þá.
Árið 2016 óskaði Úkraína eftir að gera fríverslunarsamning við Evrópusambandið.[2] Landið sótti formlega um aðild að Evrópusambandinu árið 2022.[3]
Úkraína er þróunarland og er í 74. sæti vísitölu um þróun lífsgæða. Landið er það fátækasta í Evrópu, ásamt Moldóvu. Fátækt er útbreidd og alvarleg spilling einkennir stjórnmálin.[4][5] Úkraína á víðáttumikið ræktarland og er einn stærsti kornútflytjandi heims.[6][7] Úkraínuher er þriðji stærsti her Evrópu, á eftir Rússlandsher og Frakklandsher. Stjórnarfar í Úkraínu er forsetaþingræði með þrískiptingu ríkisvaldsins. Landið á aðild að Sameinuðu þjóðunum, Evrópuráðinu, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, GUAM-stofnuninni, Lublinþríhyrningnum og er einn af stofnaðilum Samveldis sjálfstæðra ríkja, þótt landið hafi aldrei gerst formlegur aðili.