From Wikipedia, the free encyclopedia
Rússland innlimaði Krímskaga í kjölfar úkraínsku byltingarinnar 2014. Á skaganum, sem tilheyrði Úkraínu, er mikill meirihluti af rússnesku bergi brotinn. Í febrúar 2014 var ný ríkisstjórn mynduð í Úkraínu sem óskaði nánari tengsla við Evrópusambandið, en fyrri ríkisstjórn lagði áherslu á samskipti við Rússland. Ýfingar á milli Evrópusambandssinna og þeirra sem styðja Rússland brutust út. Ómerkt herlið hertók Krímskaga, en Rússar sögðu þetta vera heimavarnarlið skagans. Stuttu síðar framkvæmdu Rússar hernaðaríhlutun á skaganum.
Undir stjórn Rússa fengu íbúar skagans að kjósa um það hvort þeir vildu tilheyra Rússlandi eða Úkraínu eða stofna sjálfstætt ríki og voru úrslit kosninganna þau að mikill meirihluti valdi að tilheyra Rússlandi. Í Rússlandi telst hann eftir þessar kosningar sjálfsstjórnarsvæði sem er lýðveldi.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.