Ólöf Nordal
íslensk stjórnmálakona (1966-2017) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ólöf Nordal (f. 3. desember 1966, d. 8. febrúar 2017) var innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins 2007-2013 og 2016-2017.
Ólöf Nordal (ÓN) | |
![]() Ólöf Nordal | |
Fæðingardagur: | 3. desember 1966(1966-12-03) |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Dánardagur: | 8. febrúar 2017 (50 ára) |
Flokkur: | ![]() |
Þingsetutímabil | |
2007-2009 | í Norðaust. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2009 | í Norðaust. fyrir Sjálfstfl. |
2009-2013 | í Rvk. s. fyrir Sjálfstfl. |
2016-2017 | í Rvk. s. fyrir Sjálfstfl. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2010-2013 | Varaformaður Sjálfstæðisflokksins |
2015-2017 | Varaformaður Sjálfstæðisflokksins |
2014-2017 | Innanríkisráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Ólöf sat á Alþingi fyrir Norðausturkjördæmi 2007-2009 og Reykjavíkurkjördæmi suður 2009-2013 og aftur frá kosningum 2016 til dánardags. Ólöf var varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2010-2013 og 2015-2017. Ólöf ákvað að gefa ekki kost á sér til endurkjörs í alþingiskosningum 2013 og hætti sem varaformaður á landsfundi í aðdraganda þingkosninga. Árið 2015 ákvað Ólöf að bjóða sig aftur fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokkins. Ólöf ákvað í lok maí 2016 að bjóða sig á ný fram til Alþingis.
Hún tók við embætti innanríkisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 4. desember 2014, og var fyrsti utanþingsráðherra Sjálfstæðisflokksins síðan Geir Hallgrímsson var utanríkisráðherra 1983-1986. Ólöf tók við af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem innanríkisráðherra þegar sú síðarnefnda sagði af sér. Ólöf gegndi ráðherraembætti þar til í janúar 2017.
Faðir hennar var Jóhannes Nordal, fyrrverandi bankastjóri Seðlabanka Íslands og móðir hennar er Dóra Nordal, píanóleikari og húsmóðir. Eiginmaður Ólafar var Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi og eignust þau fjögur börn; Sigurð 1991, Jóhannes 1994, Herdísi 1996 og Dóru 2004.
Ólöf greindist með krabbamein síðsumars árið 2014 og lést af þess völdum 8. febrúar 2017.