![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3d/Nor%25C3%25B0austurkj%25C3%25B6rd%25C3%25A6mi.svg/langis-640px-Nor%25C3%25B0austurkj%25C3%25B6rd%25C3%25A6mi.svg.png&w=640&q=50)
Norðausturkjördæmi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Norðausturkjördæmi er eitt af kjördæmum Íslands. Það hefur 10 sæti á Alþingi, þar af 1 jöfnunarsæti. Kjördæmið var sameinað úr kjördæmunum Norðurlandi eystra og Austurlandi með þeim undantekningum að Siglufjörður sem áður tilheyrði Norðurlandi vestra er í Norðausturkjördæmi en Hornafjörður sem áður var í Austurlandskjördæmi tilheyrir nú Suðurkjördæmi. Kjördæmið var búið til með nýrri kjördæmaskipan árið 2000. Fyrst var kosið samkvæmt nýrri kjördæmaskipan í Alþingiskosningum 2003.
![]() | |||||||||||||||||||||||||||||||
Þingmenn
|
| ||||||||||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Mannfjöldi | 41.017 (2021) | ||||||||||||||||||||||||||||||
Sveitarfélög | 17 | ||||||||||||||||||||||||||||||
Kjósendur
|
| ||||||||||||||||||||||||||||||
Kjörsókn | 80,9% (2021) | ||||||||||||||||||||||||||||||
Núverandi þingmenn | |||||||||||||||||||||||||||||||
|
Kjördæmið hefur sem áður segir verið talið eitt höfuðvígi Framsóknarflokksins sem hefur nær alltaf átt fyrsta þingmann kjördæmisins (og þar áður á Norðurlandi eystra og Austurlandi) og ef ekki þann fyrsta þá annan. Vinstri græn hafa frá stofnun flokksins 1999 einnig fengið mest fylgi í Norðausturkjördæmi (og þar áður á Norðurlandi eystra) en það var heimakjördæmi fyrsta formanns flokksins, Steingríms J. Sigfússonar.
Í þeim sjö Alþingiskosningum sem hafa fram í núverandi kjördæmaskipan hafa bæði Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn þrisvar sinnum átt fyrsta þingmann Norðausturkjördæmis en Vinstri Græn einu sinni.