Gullfiskur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Gullfiskur (fræðiheiti: Carassius auratus auratus) er ferskvatnsfiskur af vatnakarpaætt. Þeir eru upprunalega frá Austur-Asíu og geta orðið allt að 20 ára gamlir.[3]
Gullfiskur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Heimilisdýr | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Þrínefni | ||||||||||||||||
Carassius auratus auratus[2] (Linnaeus, 1758) | ||||||||||||||||
Þetta er tiltölulega smávaxin tegund af vatnakarpaætt (sem einnig inniheldur koi (Cyprinus carpio haematopterus) og grænkarpa (Carassus carassius), gullfiskurinn er ræktað afbrigði af síður skrautlegum karpa, gullkarpa (Carassius auratus gibelio) frá Austur-Asíu. Hann var fyrst ræktaður í Kína fyrir meira en þúsund árum síðan, og allnokkur aðskilin afbrigði hafa þróast síðan. Afbrigði gullfiska eru breytileg í stærð, líkamslögun, lögun ugga og litum (ýmsar samsetningar af hvítum, gulum, rauðum, rauðgulum, brúnum og svörtum eru þekktar).
Stökkbreyting svipuð þeirri sem olli uppruna gullfiska er einnig þekkt hjá öðrum vatnakörpum, svo sem vatnakarpa (Cyprinus carpio) og grunnungi (Tinca tinca).