Knattspyrnufélagið Þróttur
fjölíþróttafélag í Laugardal í Reykjavík / From Wikipedia, the free encyclopedia
Knattspyrnufélagið Þróttur var stofnað 5. ágúst 1949 í herbragga við svonefnda Grímstaðavör við Ægissíðu. Stofnendur félagsins voru Halldór Sigurðsson kaupmaður, sem var fyrirmyndin að Tomma í bókum Einars Kárasonar um Djöflaeyjuna, og Eyjólfur Jónsson, síðar lögreglumaður og sundkappi.
- Þessi grein fjallar um reykvíska knattspyrnufélagið. Fyrir það norðfirska, sjá Þróttur Neskaupstað.
![]() |
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Staðreyndir strax Gælunafn/nöfn, Stytt nafn ...
Knattspyrnufélagið Þróttur | |||
![]() | |||
Fullt nafn | Knattspyrnufélagið Þróttur | ||
Gælunafn/nöfn | Þróttarar Köttarar | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | Þróttur (Skammstöfun: KÞ) | ||
Stofnað | 1949 | ||
Leikvöllur | Avis-Völlurinn | ||
Stærð | 2341 (341 í sæti) | ||
Knattspyrnustjóri | Sigurvin Ólafsson | ||
Deild | 1. deild | ||
2023 | 8. sæti í 1. deild | ||
|
Loka
Þrátt fyrir að vera í það fyrsta einungis knattspyrnufélag hafa Þróttarar keppt í öðrum greinum í gegnum tíðina, þó mest áhersla hafi verið lögð á knattspyrnuna síðustu ár. Félagið var starfrækt í vesturbæ Reykjavíkur til ársins 1969 þegar því úthlutað svæði við Sæviðarsund í póstnúmeri 104. Þar starfaði félagið til 1998 þegar því var formlega veitt svæði í Laugardalnum. Þar hefur félagið nú aðsetur. Formaður Þróttar er Finnbogi Hilmarsson