Þjóðríki
Pólitískt hugtak fyrir ríki sem byggir á þjóð og er oftast á afmörkuðu landsvæði / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þjóðríki er ríki sem þjóð byggir, alla jafna á afmörkuðu landsvæði. Í þjóðríki er að meira eða minna leyti sátt um einingu þjóðar sem landið byggir, þar er yfirvald sem tekið er gilt, burtséð frá því hvernig stjórnarfari er háttað, og ríki sem fer með og er vettvangur fyrir ýmis sameiginleg mál þjóðarinnar.