Remove ads

Yellowstone-þjóðgarðurinn eða einfaldlega Yellowstone (enska: Yellowstone National Park) er þjóðgarður í Bandaríkjunum, staðsettur að mestu í Wyoming, en einnig að hluta í Idaho og Montana.

Thumb
Staðsetning Yellowstone.
Thumb
Old faithful geysirinn í Yellowstone.
Thumb
Hverasvæði: Grand Prismatic Spring og Midway Geyser Basin.
Thumb
Vísundur í Yellowstone.
Thumb
Vapítihjörtur í Yellowstone.
Thumb
Landslag í þjóðgarðinum. Kalksteinn sést í hlíðinni.

Yellowstone er fyrsti og elsti þjóðgarður heims, stofnaður árið 1872. Upphaf skipulegrar náttúruverndar má rekja til hans.[1] Yellowstone er á svokölluðum heitum reit, enda eru þar heitir hverir, eins og Old Faithful, sem er einn af frægustu goshverum heims. Einnig er þar gríðarstór eldfjallaaskja.

Árið 1988 urðu þar miklir skógareldar þar sem yfir 3000 ferkílómetrar lands urðu fyrir áhrifum þeirra. Árið 1995 voru úlfar fluttir til Yellowstone en þeim hafði verið útrýmt þar á þriðja áratug 20. aldar. Breytingar urðu á gróðurfari í kjölfarið og uxu ösp og víðir í meira mæli þar sem úlfar höfðu áhrif á staðsetningu grasbíta sem nörtuðu áður í trén.[2]

Remove ads

Tilvísanir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.

Remove ads