Trafalgar Square eða Trafalgar torg er torg í Mið-London í Englandi. Vegna staðsetningar torgsins er það vinsæll ferðamannastaður og eitt frægasta torg í Bretlandi og í heimi. Nelson-súlan (Nelson’s Column), er á miðju torginu með fjórum styttum af ljónum í kring. Nokkrar aðrar styttur og höggmyndir eru á torginu, og oft er þar sýning á samtímalist. Stundum eru mótmælafundir haldnir á torginu.
Torgið dregur nafn sitt af orrustunni við Trafalgar (árið 1805), þar sem Bretar unnu sigur á Frökkum í Napóleonsstyrjöldunum. Horatio Nelson flotaforingi stjórnaði þar flota Breta til sigurs, en féll sjálfur.
Upphaflega var áætlað að nafn torgsins yrði „King William the Fourth’s Square“ en George Ledwell Taylor stakk upp á að nafni væri „Trafalgar Square“.
Trafalgar Square er fjórði vinsælasti ferðamannastaður í heimi, 15 milljónir manna koma á torgið árlega.
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.