borg í Baskalandi á Spáni From Wikipedia, the free encyclopedia
San Sebastián eða Donostia (á basknesku) er hafnarborg og sveitarfélag í sjálfstórnarhéraðinu Baskalandi á Spáni. Ennfremur er hún höfuðstaður sýslunnar Gipuzkoa. Íbúar sveitarfélagsins eru 186.000 (2016) en á stórborgarsvæðinu búa um 437.000. Borgin liggur við Biskajaflóa, 20 kílómetrum frá Frakklandi.
Borgin var um tíma undir Konungsríkinu Navarra. Hún var illa leikin í Napóleónsstyrjöldunum á 19. öld og spænska borgarastríðinu á 20. öld.
Verslun og ferðaþjónusta eru nú helstu atvinnuvegir. Árlegar hátíðir eru meðal annars San Sebastián-kvikmyndahátíðin, Jazzaldia jazzhátíðin ásamt ýmsum bæjarhátíðum. Knattspyrnufélag borgarinnar er Real Sociedad.
Fyrirmynd greinarinnar var „San Sebastián“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 8. mars 2018.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.