Remove ads
From Wikipedia, the free encyclopedia
Reyðarfjörður er kaupstaður á Austfjörðum og dregur nafn sitt af samnefndum firði. Þorpið hét upphaflega Búðareyri, en er nú kallaður Reyðarfjörður. Árið 2019 var íbúafjöldi um 1.350 (Hagstofa). Reyðarfjörður er hluti af sveitarfélaginu Fjarðabyggð og er miðkjarni sveitarfélagsins. Bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar eru staðsettar á Reyðarfirði. Hafnaraðstaða er mjög góð í firðinum frá náttúrunnar hendi. Álver Alcoa-Fjarðaráls er í firðinum.
Í bænum er íþróttafélagið Valur sem hefur náð hvað bestum árangri í glímu. Fjarðabyggð er með sameiginlegt lið í 2. deild karla í knattspyrnu. Þar er einnig golfvöllur Golfklúbbs Fjarðabyggðar sem nefnist Kollur og er staðsettur í hlíðinni rétt innan við bæinn á Reyðarfirði.
Stutt er í næstu byggðarkjarna; 13km á Eskifjörð, þar sem keyrt er yfir Hólmaháls; 18km á Fáskrúðsfjörð ef keyrt er í gegnum Fáskrúðsfjarðargöngin, sem voru tekin í notkun árið 2005; og 32km í Egilsstaði.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.