Remove ads
Óvirkur tveggja skauta rafeindaíhlutur sem geymir raforku í rafsviði From Wikipedia, the free encyclopedia
Rafþéttir (yfirleitt aðeins þéttir) er íhlutur (rásaeining) sem geymir raforku í rafsviði, sem myndast milli tveggja planleiðara. Þegar rafspenna er sett á þétti safnast rafhleðsla fyrir á leiðarana, jafnmikil en af gagnstæðu formerki á hvorri plötu.
Þéttar eru notaðir sem orkugeymandi rásaeiningar í rafrásum, en þeir hafa einnig tíðniháða eigninleika og eru mikið notaðir í hliðrænar síur fyrir há- eða lágtíðnimerki. Þéttir myndar launviðnám í rafrás.
Rafrýmd þéttis er mælikvarði á hversu mikla raforku hann getur geymt og er mæld með SI-mælieiningunni farad, táknuð með F.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.