From Wikipedia, the free encyclopedia
Dr. Ing. h.c. F. Porsche AG stundum nefndur Porsche AG eða bara Porsche er þýskur bílaframleiðandi sem sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu sportbíla. Fyrirtækið var stofnað 1931 af Ferdinand Porsche (1875–1951), verkfræðingnum sem hannaði fyrstu Volkswagen-bifreiðina. Verksmiðja fyrirtækisins er í Zuffenhausen, skammt frá Stuttgart.
Fyrirtækið Porsche var upphaflega sjálfstætt, og framleiddi t.d. á tímabili líka traktora, en er nú í eigu Volkswagen AG, og Porsche eitt af mörgum merkjum þess fyrirtækis. Hins vegar er Porsche SE eignarhaldsfélagið með ráðandi hlut í Volkswagen fyrirtækinu, og Porsche SE er að meirihluta í eigu austurrísks-þýsku Porsche–Piëch fjölskyldunnar, afkomenda Ferdinand Porsche og tengdasonar hans Anton Piëch (1894–1952).
Bílar sem Porsche framleiðir núna eru 718 Boxster/Cayman, 911 (992), Panamera, Macan, Cayenne og Taycan.
Ferdinand Porsche er best þekktur fyrir að búa til fyrsta bensín–rafmagns bræðingsbílinn (e. hybrid vehicle) Lohner–Porsche (10–14 hestöfl) sem var framleiddur 1900–1905, og fyrir að hanna Volkswagen-bjölluna (e. Volkswagen Beetle), Auto Union kappakstursbílinn, og Mercedes-Benz SS/SSK og fleiri bíla.
Ath.: feitletruð módel eru þau sem nú eru framleidd.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.