Play

íslenskt lággjaldaflugfélag From Wikipedia, the free encyclopedia

Play

Play er íslenskt lággjaldaflugfélag sem stofnað var 2019.

Staðreyndir strax Rekstrarform, Stofnað ...
PLAY
Thumb
Rekstrarform Hlutafélag
Stofnað Nóvember 2019
Staðsetning Reykjavík, Ísland
Lykilpersónur Arnar Már Magnússon
Sveinn Ingi Steinþórsson
Forstjóri: Birgir Jónsson
Starfsemi Flugfélag
Vefsíða https://flyplay.com/
Loka

Saga

Tveir stjórnarmenn WOW air, Arnar Már Magnússon og Sveinn Ingi Steinþórsson lýstu því yfir í júlí 2019 að nýtt flugfélag væri í bígerð og var vinnuheitið WAB (We are back). Fjármögnun félagsins kom 80 prósent erlendis frá en 20 prósent frá Íslandi.

Play ætlaði sér upphaflega að hefja flug vorið 2020. Í nóvember 2020 hafði félagið enn ekki fengið flugrekstrarleyfi en lýsti yfir því að það hefði í hyggju að hefja flug á öðrum ársfjórðungi 2021.[1] Flugfélagið áætlaði upphaflega að það hefði 14 áfangastaði í Evrópu og Bandaríkjunum[2] og að fyrstu áfangastaðirn­ir yrðu Kaupmannahöfn, London, París, Berlín, Alicante og Tenerife.[3] Play hóf að selja fyrstu flugmiðana í maí 2021. Athygli vakti að kjarasamningar félagsins sýndu laun undir lágmarkslaunum á Íslandi. ASÍ hvatti í kjölfarið til sniðgöngu á flugfélaginu. [4]

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.