Adobe Photoshop er myndvinnsluforrit frá bandaríska fyrirtækinu Adobe. Forritið er hluti af Creative Suite pakkanum sem Adobe hefur gefið út síðan árið 2003. Photoshop í til í tveimur útgáfum: Adobe Photoshop og Adobe Photoshop Extended, sem er sniðað að þrívíddarmyndvinnslu, kvikmyndavinnslu og myndgreiningu. Adobe Photoshop Extended fylgir öllum útgáfum af Creative Suite nema Design Standard-útgáfunni, sem fylgir venjulega Photoshop.
Auk þess að gefa út Photoshop selur Adobe Photoshop Elements, sem er takmörkuð útgáfa ætluð fyrir heimilisnotkun, og Photoshop Lightroom, sem er ætlað ljósmyndurum og er í samkeppni við Aperture frá Apple. Árið 2008 gaf Adobe út Photoshop Express, sem er ókeypis vefforrit til að laga myndir á bloggsíðum og netsamfélögum. Útgáfa þessa forrits fyrir Android og iPhone var sett á markað árið 2011.
Tenglar
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.