Remove ads

Peningaþvætti á við það að hylja uppruna illa fenginna peninga svo að þeir virðast stafa af löglegri starfsemi. Tilgangur peningaþvættis er að hindra það að finna út af því hvort einhver á peninga af ólöglegum uppruna svo að hann geti notað þá. Talað er um að þvo eða þvætta peninga.[1][2]

Ýmsar tæknir eru notaðar til að þvo peninga, til dæmis er stórri upphæð skipt upp í smærri upphæðir sem eru svo lagðar inn á nokkra bankareikninga. Þvegnir peningar eru oft afrakstur glæpa eins og þjófnaðar, fíkniefnasölu eða vændis. Oft eru slíkir peningar lagðir inn á t.d. erlenda bankareikninga í skattaskjólum eða löndum þar sem peningaþvættislög eru ekki svo ströng.[1]

Samkvæmt lögum nr. 80 frá 1993 er peningaþvætti ólöglegt á Íslandi.[1]

Árið 2019 gerði Fjármálaeftirlitið athugasemdir við peningaþvættisvarnir íslensku viðskiptabankanna.[3]

Remove ads

Heimildir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.

Remove ads