From Wikipedia, the free encyclopedia
Ofbeldi er „viljandi notkun krafts eða valds, annaðhvort hótuð eða raunveruleg, gegn sjálfum sér, öðrum einstaklingi, eða hópi eða samfélagi, sem leiðir til eða er líkleg til að leiða til meiðsla, dauða, sálfræðilegs skaða, vanþroskunar eða sviptingar“.[1] Velferðarráðuneyti Íslands skiptir ofbeldi í fjóra aðalflokka: líkamlegt ofbeldi, tilfinningalegt ofbeldi, vanrækslu og kynferðislegt ofbeldi.[2] Afleiðingar ofbeldis skipast í skammtíma- og langtímaafleiðingar en eru meðal annars minnkaður möguleiki til að gleðjast, hegðunarvandamál, lélegt sjálfstraust, erfiðleikar í að treysta öðrum og erfiðleikar í námi.[2]
Um allan heim deyja 1,6 milljón fórnarlömb ofbeldis á hverju ári: 50% vegna sjálfsmorðs, 35% vegna manndráps og 12% voru bein afleiðing stríðs eða annarra átaka. Áætlað er að 60,9 af hverjum 100.000 Afríkubúum deyja á hverju ári vegna ofbeldis.[3] Ofbeldi leiðir til tuga spítalainnlagna, hundraða heimsókna til slysadeilda og þúsunda funda með læknum.[4] Í mörgum tilfellum er hægt að koma í veg fyrir ofbeldi.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.