ættbálkur ófleygra fugla From Wikipedia, the free encyclopedia
Mörgæsir (fræðiheiti: Sphenisciformes) er ættbálkur ófleygra fugla. Til eru sautján tegundir af mörgæsum. Mörgæsir eru ófleygar og lifa flestar í svalari hluta Suður-Íshafsins. Skrokkurinn er svartur á baki og hvítur að framan og þær hafa stutta en sterka fætur aftarlega á skrokknum. Talið er að mörgæsir eyði allt að þremur fjórðu hlutum ævi sinnar í sjó enda eru þær miklir sundgarpar. Mörgæsir eru kjötætur og fæða þeirra er aðalega lítil sjávardýr.
Mörgæsir | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Keisaramörgæsir | ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Ættkvíslir | ||||||||||||
| ||||||||||||
Stærsta mörgæsin er keisaramörgæs en þær geta orðið allt að 21-40 kg og um 120 cm. á hæð. En sú minnsta er dvergmörgæs, þær vega aðeins 1-1,8 kg og eru minni en sumar endur.
Mörgæsir eru komnar af fleygum fuglum en geta þrátt fyrir það ekki flogið. Tvennt er sem veldur því að þær geta ekki flogið en það er að þær eru of þunga og vængirnir eru of stuttir miðað við líkamsstærð. Vængirnir minna frekar á hreifa en vængi, enda hafa þeir aðlagast sundi og mörgæsir eru afbragðs sunddýr og komast mjög hratt yfir. Það finnast fleiri fuglar en mörgæsir sem geta ekki flogið, má þar nefna strút, móa og emúa. En þær eins og mörgæsin hafa aðlagast landlífinu [2].
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.