From Wikipedia, the free encyclopedia
James Philip Milner (f. 4. janúar 1986 í Leeds, Englandi) er enskur knattspyrnumaður sem spilar fyrir Brighton & Hove Albion. Milner er fjölhæfur og getur spilað margar stöður á vellinum.
James Milner | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | James Philip Milner | |
Fæðingardagur | 4. janúar 1986 | |
Fæðingarstaður | Leeds, England | |
Hæð | 1,75 m | |
Leikstaða | Miðjumaður, vængmaður, bakvörður | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | Brighton & Hove Albion | |
Númer | 7 | |
Yngriflokkaferill | ||
1996–2002 | Leeds United | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2002–2004 | Leeds United | 48(5) |
2003 | →Swindon Town (lán) | 6 (2) |
2004-2008 | Newcastle United | 94 (6) |
2005-2006 | →Aston Villa (lán) | 27 (1) |
2008-2010 | Aston Villa | 73 (11) |
2010-2015 | Manchester City | 147 (13) |
2015-2023 | Liverpool FC | 230 (19) |
2023- | Brighton & Hove Albion | 0 (0) |
Landsliðsferill | ||
2009–2016 | England | 61 (1) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Hann var alinn upp í Leeds United, spilaði með aðalliðinu og varð yngsti maður til að skora mark í ensku úrvalsdeildinni, 16 ára og 356 daga gamall. Hann hefur spilað með ýmsum liðum á Englandi og með Manchester City vann hann deildartitla 2011–12 og 2013–14 með liðinu ásamt deildarbikurum; 2010–11 FA Cup og 2013–14 League Cup. Frá 2015 hefur hann spilað með Liverpool og vann hann Meistaradeild Evrópu með félaginu árið 2019 og ensku deildina 2020.
Milner hætti með landsliðinu árið 2016 en hann spilaði 61 leik og skoraði 1 mark. Hann er 3. leikjahæsti leikmaður Ensku úrvalsdeildarinnar með yfir 600 leiki og sá 8. hæsti í stoðsendingum. Hann á flestar stoðsendingar í Meistaradeildinni á einu tímabili eða 9. Milner hefur spilað um 1.000 leiki á ferlinum.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.