Ingólfur Þórarinsson
íslenskur tónlistamaður From Wikipedia, the free encyclopedia
Ingólfur Þórarinsson (fæddur 31. maí 1986), almennt þekktur sem Ingó Veðurguð er íslenskur tónlistarmaður og fyrrverandi knattspyrnumaður. Hann var í hljómsveitinni Ingó og Veðurguðirnir sem átti smellina „Bahama“ og „Gestalistinn“.[1][2]
Ingó Veðurguð | |
---|---|
![]() Ingó að spila með Veðurguðunum árið 2011 | |
Fæddur | Ingólfur Þórarinsson 31. maí 1986 |
Önnur nöfn | Ingó Veðurguð |
Störf |
|
Tónlistarferill | |
Ár virkur | 2008-núna |
Hljóðfæri |
|
Útgefandi |
|
Áður meðlimur í | Ingó og Veðurguðirnir |
Árið 2021 var hann sakaður um óviðeigandi hegðun gagnvart unglingsstúlkum.[3][4][5][6]
Fótboltaferill
Ingólfur hóf fótboltaferil sinn í heimabæ sínum, Selfossi, áður en hann fór að spila fyrir Örgryte IS í Svíþjóð í september 2003. Það gekk ekki upp í Svíþjóð og hann kom aftur til selfoss í mars 2004.
Í febrúar 2005 samdi Ingólfur við Fram eftir að hafa vakið áhuga félaga eins og Fylkis, ÍBV og Vals.[7] Ingólfur lék aðeins 8 leiki fyrir Fram og samdi aftur við Selfoss í janúar 2007.[8] Ingólfur var í liði Selfoss sem komst upp í úrvalsdeild karla í fyrsta sinn í sögu félagsins árið 2009.[9]
Í janúar 2011 samdi Ingólfur við Víking en tókst aðeins að spila 2 leiki þar áður en hann samdi aftur við Selfoss í ágúst síðar sama ár.[10][11]
Í október 2013 var Ingólfur ráðinn leikstjórnandi hjá Hamri í Hveragerði fyrir tímabilið 2014 og lék þá í 3. deild karla eftir fall úr 2. deild karla árið 2013.[12] Hamar náði aðeins að vinna 2 leiki og féll niður í 2. deild karla. 4. deild karla.
Ingólfur lék 4 leiki fyrir U16-landslið karla í fótbolta, 2 leiki fyrir U17 og 3 leiki fyrir U19.
Tónlistarferill
Idol
Ingólfur keppti í þriðju þáttaröð af Idol stjörnuleit árið 2005 og endaði í 6. sæti. Á þessum tíma lék hann með Fram og þáttakan í sjónvarpsþáttunum var ein ástæða þess að honum tókst aðeins að spila 8 leiki fyrir Fram.
Ingó og Veðurguðirnir
Árið 2008 stofnaði Ingólfur hljómsveit sem hét Ingó og Veðurguðirnir. Hljómsveitin er þekktust fyrir lagið „Bahama“.[13] Lagið komst í efsta sæti vinsældarlistans og var þar í 9 vikur í röð árið 2008. Annað vinsælt lag frá hljómsveitinni er lagið „Gestalistinn“ og var 9 vikur á toppi vinsældarlistans.[14]
Sólóferill
Ingólfur tók þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2009 með laginu „Undir regnbogann“. Hann komst í úrslit en endaði í öðru sæti á eftir Jóhönnu Guðrúnu sem söng lagið „Is It True?“. Ingólfur lék Buddy Holly í samnefndum söngleik í Austurbæ sem var frumsýndur í október 2010 og söng inn á plötu söngleiksins.[15] Árið 2011 gaf Ingólfur út sína fyrstu sólóplötu sem heitir Ingó sem inniheldur lagið „Argentína“ sem aukalag. Síðan þá hefur Ingólfur gefið út fleiri lög eins og „Sumargleðin“, „Í kvöld er gigg“, „Takk fyrir mig“ og „Gírinn“.
Einkalíf
Bróðir Ingólfs er íslenski knattspyrnumaðurinn Guðmundur Þórarinsson sem leikur með Ney Work City í MLS, bandarísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Guðmundur gefur einnig út tónlist undir listamannanafninu Gummi Tóta.
Ásakanir
Frá árinu 2013 hafði Ingólfur stýrt brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og átti að snúa aftur árið 2021. Eftir bylgju ásakanna um óviðeigandi hegðun, kynferðislega áreitni og ofbeldi, þá einkum gagnvart unglingsstúlkum undir lögaldri tilkynnti skipulagsnefnd hátíðarinnar hann myndi ekki koma fram á hátíðinni.[3][4][5][6]
Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins, hefur síðan þá stýrt brekkusöngnum á Þjóðhátíð.[16] Í júní 2023 var tilkynnt að Ingólfur myndi koma fram á Goslokahátíð Vestmannaeyja, en þó ekki á Þjóðhátíð.[17]
Útgefið efni
Breiðskífur
- Góðar stundir (2009) (ásamt Veðurguðunum)
- Buddy Holly söngleikurinn (2010)
- Ingó (2011)
Smáskífur
- „Drífa“ (2008) (ásamt Veðurguðunum)
- „Jólakrakkar“ (2009)
- „Fanney“ (2011)
- „Ertu ástfanginn“ (2011) (ásamt Fjallabræðrum)
- „Önnur öld“ (2013) (ásamt Veðurguðunum)
- „Suðurlandsins eina von“ (2013)
- „Ferðalag“ (2013) (ásamt Veðurguðunum)
- „Ítalska lagið“ (2014) (ásamt Veðurguðunum)
- „Loggaðu þig út“ (2015) (ásamt Veðurguðunum)
- „Að Eilífu“ (2017)
- „Sumargleðin“ (2019) (ásamt Doctor Victor og Gumma Tóta)
- „Valli Reynis“ (2019)
- „Gestalistinn 2.0“ (2019)
- „Kenya“ (2019)
- „Bikaróður Eyjamaður“ (2020)
- „Í kvöld er gigg“ (2020)
- „Takk fyrir mig“ (2020)
- „Gírinn“ (2021) (ásamt Doctor Victor og Gumma Tóta)
- „Gítarinn“ (2023)
Heimildir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.