From Wikipedia, the free encyclopedia
Hebreska stafrófið (hebreska: אָלֶף-בֵּית עִבְרִי,) er eitt abdsjad sem samanstendur af 22 stafagerðum. Einnig má finna lítið breyttar útgáfur stafanna í nokkrum öðrum tungumálum innan samfélags gyðinga en þar ber helst að nefna jiddísku, ladino og judeo-arabísku. Fimm stafagerðir hafa mismunandi birtingamyndir þegar þau koma fyrir aftast í orði.
Hebreska er skrifuð frá hægri til vinstri. Fjöldi stafa, uppröðun, nöfn og hljóðfræði eru sams konar og í arameíska stafrófinu en bæði tungumálin notuðust við fönikískt stafróf á undir lok annarar aldar fyrir Krist.
Samkvæmt nútímafræðimönnum er nútímaritmál hebresku byggt á aramísku ritmáli frá þriðju öld f.Kr. en gyðingar höfðu notað það til þess að skrifa hebresku frá því um á 6. öld f. Kr. Fyrir þann tíma notuðust gyðingar við gamalt hebreskt ritmál en það er byggt á fönísku ritmáli frá því á 10. öld f.Kr. en það ritmál er notað enn í dag í trúarlegum verkum.
Listinn er ekki tæmandi
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.