Furstinn

From Wikipedia, the free encyclopedia

Furstinn

Furstinn (í. Il Principe) er þekktasta rit Niccolòs Machiavelli (1469 - 1527) sem var embættismaður frá Flórens. Niccolò skrifaði bókina árið 1513 en hún kom fyrst út árið 1532. Bókin er leiðarvísir handa furstum um hvernig halda skuli völdum og auka þau, hvaða brögðum beri að beita og hvaða sögulega lærdóma sé hægt að draga. Um leið sýnir hún einkar vel hugsunarhátt og aðferðir valdhafa gegnum aldirnar, enda er hún eitt frægasta stjórnmálarit allra tíma.

Staðreyndir strax Höfundur, Upprunalegur titill ...
Furstinn
Thumb
Titilsíða útgáfu bókarinnar frá 1550.
HöfundurNiccolò Machiavelli
Upprunalegur titillIl Principe
ÞýðandiÁsgrímur Albertsson (1987)
TungumálÍtalska
ÚtgefandiAntonio Blado d'Asola
Útgáfudagur
1532
ISBNISBN 9979317019
Loka
Thumb
Furstinn var tileinkuð Lorenzo di Piero de' Medici af hinni voldugu Medici-ætt.

Á mörgum tungumálum er það orðið niðrandi lýsingarorð að segja einhvern vera machiavellískan og er þá átt við að viðkomandi sé snauður tilfinningum, og jafnvel siðferði og hugsi einvörðungu um eiginhagsmuni.[1]

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.