David Warren (20. mars 1925 – 19. júlí 2010) var ástralskur vísindamaður sem fann upp og þróaði svarta kassann í flugvélum. Faðir hans lést árið 1934 í flugslysi. Hann lauk B.S. gáðu frá Háskólanum í Sydney og doktorsgráðu í eldsneytis- og orkufræðum frá Imperial College í London og kennslufræðinámi frá Háskólanum í Sydney. Hann starfaði sem kennari í stærðfræði og efnafræði og seinna sem vísindamaður í flugrannsóknastofnun í Melbourne.
Hann rannsakaði flugslys í fyrstu þotunni sem notuð var til almennra farþegaflutninga og sá árið 1953 lítið segulbandstæki á sýningu, segulbandtæki sem ætlað var kaupsýslumönnum sem voru á ferðalagi í flugvélum og lestum svo þeir gætu tekið upp bréf sem þeir létu ritara sína vélrita upp seinna. Warren taldi að slík tækni gæti einnig gagnast til að rannsaka flugslys, ef einhver í flugvél sem hefði hrapað hefði verið að nota slíkt tæki. Þá væri hægt að leita að upptökutækinu í flugvélaflakinu og spila upptöku og komast af því hvað kom fyrir. Á þessum tíma var þegar farið að skrá og að taka upp sjálfkrafa ýmis gildi varðandi flug en ekki raddupptöku. Þessi uppfinning að setja lítið upptökutæki í flugstjórnarklefann varð mikilvægt tæki til að rannsaka flugslys og átti þar með mikinn þátt í að tryggja flugöryggi.
Heimildir
- Fyrirmynd greinarinnar var „David Warren (inventor)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 19. júlí 2019.
- Æviágrip hjá Defence Science and Technology OrganisationGeymt 10 maí 2012 í Wayback Machine
- This little-known inventor has probably saved your life. BBC News, 18 júlí 2019
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.