Dalvík

bær við Eyjafjörð From Wikipedia, the free encyclopedia

Dalvík

Dalvík er sjávarpláss við Eyjafjörð, í mynni Svarfaðardals í Dalvíkurbyggð. Bærinn var upphaflega innan Svarfaðardalshrepps, en var gerður að sérstökum hreppi 1. janúar 1946. Dalvík fékk kaupstaðarréttindi 22. apríl 1974. Íbúar í Dalvík voru 1.360 í janúar árið 2024.

Staðreyndir strax Land, Landshluti ...
Dalvík
Thumb
Dalvík, 2005
Thumb
Thumb
Dalvík
Staðsetning Dalvíkur
Hnit: 65°58′21.10″N 18°32′0.53″V
LandÍsland
LandshlutiNorðurland eystra
KjördæmiNorðaustur
SveitarfélagDalvíkurbyggð
Mannfjöldi
 (2024)[1]
  Samtals1.360
Heiti íbúaDalvíkingar[2]
Póstnúmer
620
Vefsíðadalvikurbyggd.is
Loka

Eitt og annað

  • 2. júní árið 1934 varð jarðskjálfti við Eyjafjörð sem olli miklu tjóni á Dalvík og um 200 manns urðu heimilislausir. [3]. Upptök hans voru skammt frá byggðinni. Skjálfti þessi er nefndur Dalvíkurskjálftinn.
  • Þann 7. júní 1998 sameinuðust Dalvíkurkaupstaður og Svarfaðardalshreppur á ný ásamt Árskógshreppi undir nafninu Dalvíkurbyggð.
  • Fiskidagurinn mikli var haldinn í ágúst ár frá 2001 til 2019, og 2023. Bæjarbúar buðu hátíðargestum upp á fiskisúpu og fyrirtæki gáfu hverjum sem vildi að smakka á sjávarafurðum sínum án endurgjalds. Hátíðinni lauk jafnan með miklum útitónleikum og flugeldasýningu. [4]
  • Gísli, Eiríkur, Helgi, Kaffihús/bar og sögusetur um Bakkabræður.
  • Sýndarvélin sem Android-stýrikerfið fyrir farsíma keyrir á nefnist Dalvik eftir bænum Dalvík þaðan sem höfundur hennar, Dan Bornstein, rekur ættir sínar.

Myndir

Tilvísanir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.