Remove ads
From Wikipedia, the free encyclopedia
Dómstóll er opinber almenningsstofnun sem hefur vald til að framkvæma réttarhöld. Í hefðbundnum verkahring dómstóls eru meðal annars deilulausnir, dómsuppkvaðningar og meðhöndlun mála í sambandi við umfang framkvæmdavaldsins. Í lýðveldi er mikilvæg undirstaða skiptingar ríkisvaldsins sú að dómsvaldið sé aðskilið frá öðrum völdum. Úr annarri grein íslensku stjórnarskrárnar:
Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið. Forseti og önnur stjórnarvöld samkvæmt stjórnarskrá þessari og öðrum landslögum fara með framkvæmdarvaldið. Dómendur fara með dómsvaldið.[1] |
Í lýðveldi eiga allir rétt á að koma með deilur sínar til dómstóls. Dómstóll er hluti dómskerfis sem skiptist í ýmislegar stofnanir á mismunandi stigum. Ákveðnir dómstólar sjá um ákveðin mál, til dæmis sérhæfir Mannréttindadómstóll Evrópu sig í afgreiðslu mála í sambandi við brot á mannréttindum.
Íslenska kerfinu má skipta í tvö stig: Hæstarétt og Héraðsdómstólana. Í dómstól Hæstaréttar eru níu dómarar sem forseti Íslands skipar í embætti samkvæmt tillögum innanríkisráðherra. Héraðsdómstólarnir eru átta samtals.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.