Austurasíubý eða austurasískt hunangsbý (fræðiheiti: Apis cerana[1]) er býflugnategund með útbreiðslu í suður, suðaustur og austur Asíu. Hún er systurtegund Apis koschevnikovi og eru báðar í sömu deild og alibýfluga.[2][3][4][5][6].
Er hún mjög áþekk alibýflugu í útliti og hegðun og hefur einnig verið nýtt um aldir eins og hún. Flugurnar og búin eru hinsvegar minni og uppskeran eftir því. Þrátt fyrir skyldleika geta þær ekki eignast afkvæmi með alibýflugum eða rauðbýum.
Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Tvínefni ...
Apis cerana þernur og drottning (merkt með rauðum bletti).
Þær geta flogið í kaldara veðri[7] heldur en alibýflugur og geta því farið fyrr af stað um morguninn.
Varroa mítillinn (bæði V. destructor og V. jacobsoni) þróaðist upphaflega með austurasíubýi, sem og einfrumungurinn (eða sveppur) Nosema ceranae. Hvorutveggja eru miklir skaðvaldar í býflugnarækt.
Austurasíubýum hefur gjarnan verið skift í 6-8 undirtegundir, en deilt er um hversu stætt er á því, hvort einhverjar þeirra séu sjálfstæðar tegundir eða eingöngu landfræðileg afbrigði og jafnvel hver séu mörkin á milli þeirra. Samkvæmt Radloff et al., 2010 [8] er flokkunin eftir formgerð og ekki undirtegundir (sjá kort til vinstri)
Samkvæmt Engel (1999) eru undirtegundirnar þessar;
Pesenko, Yu. A.; Lelej, A. S.; Radchenko, V. G. & G. N. Filatkin. (1990) The Chinese wax bee Apis cerana cerana F. (Hymenoptera, Apoidea) in the Soviet Far East. Entomological Review (Washington) 69(3): 21–46.
Friedrich Ruttner: Naturgeschichte der Honigbienen. Franckh-Kosmos-Verlag, Stuttgart 1992, ISBN 3-440-09125-2