Forsætisráðherra Bretlands (1897-1977) From Wikipedia, the free encyclopedia
Anthony Eden (12. júní 1897 – 14. janúar 1977) var breskur íhaldsmaður sem var utanríkisráðherra Bretlands í þremur ríkisstjórnum og síðan forsætisráðherra Bretlands í eitt og hálft ár 1955-1957.
Sir Anthony Eden | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 6. apríl 1955 – 10. janúar 1957 | |
Þjóðhöfðingi | Elísabet 2. |
Forveri | Winston Churchill |
Eftirmaður | Harold Macmillan |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 12. júní 1897 Windlestone Hall, County Durham, Englandi |
Látinn | 14. febrúar 1977 (79 ára) Alvediston, Wiltshire, Englandi |
Stjórnmálaflokkur | Íhaldsflokkurinn |
Maki | Beatrice Beckett (g. 1923; skilin 1950); Clarissa Spencer-Churchill (g. 1952) |
Börn | Simon, Robert, Nicholas |
Háskóli | Christ Church, Oxford |
Starf | Stjórnmálamaður |
Hann varð fyrst utanríkisráðherra aðeins 38 ára gamall í ríkisstjórn Neville Chamberlain en sagði af sér 1938 vegna undanlátsstefnu Chamberlains gagnvart fasistastjórn Mussolinis á Ítalíu. Hann varð aftur utanríkisráðherra í ríkisstjórn Winston Churchill 1940 til 1945 og aftur 1951-1955 þegar hann tók við af Churchill sem forsætisráðherra.
Orðstír Eden beið hnekki þegar Bandaríkin neituðu að styðja hernaðaraðgerðir Breta, Frakka og Ísraela í Súesdeilunni 1956. Bretar og Frakkar neyddust því til að draga herlið sitt til baka. Þetta var sögulegt bakslag fyrir utanríkisstefnu Breta og fól í sér endalok áhrifavalds þeirra í Mið-Austurlöndum. Ýmsir sagnfræðingar telja að þessi viðburður marki endalok heimsveldisstefnu Bretlands. Tveimur mánuðum síðar sagði Eden af sér vegna heilsubrests.
Fyrirrennari: Winston Churchill |
|
Eftirmaður: Harold Macmillan |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.