Remove ads
íslenskur sjónvarpsþáttur (2005-2008) From Wikipedia, the free encyclopedia
Allt í drasli var íslenskur sjónvarpsþáttur sem var á dagskrá á Skjá einum frá 2005. Þátturinn er íslensk útfærsla á breska þættinum How Clean is Your House?. Þátturinn gekk út á það að farið er heim til fólks þar sem umgengni og hreinlæti er verulega ábótavant og messað yfir heimilisfólki um leið og ræstingafólk tók til og þreif.
Allt í drasli | |
---|---|
Kynnir | Heiðar Jónsson (2005-2007) Margrét Sigfúsdóttir Eva Ásrún Albertsdóttir (2007-2008) |
Yfirlestur | Hjálmar Hjálmarsson |
Upprunaland | Ísland |
Frummál | Íslenska |
Fjöldi þáttaraða | 3 |
Fjöldi þátta | 26 |
Framleiðsla | |
Lengd þáttar | 22 mínútur |
Framleiðsla | Saga Film |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | Skjár Einn |
Sýnt | 2005 – 2008 |
Upphaflega voru þáttastjórnendur Heiðar Jónsson snyrtir og Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri Hússtjórnarskólans í Reykjavík, en árið 2007 tók Eva Ásrún Albertsdóttir við af Heiðari við hlið Margrétar. Sögumaður var Hjálmar Hjálmarsson. Aðal ræstingamenn sem sáu um mesta vinnu við gerð þáttanna voru Ólafur og Tómas Þórarinssynir.
Þættirnir voru gerðir samkvæmt bresku forskriftinni og mikið er um ýktar raddir, upphrópanir og líkamlegt látbragð til að lýsa yfir vanþóknun yfir ástandinu. Þessi forskrift er nú í notkun við þáttagerð í fjöldamörgum Evrópulöndum, íslenska útgáfan var ellefta staðfæringin á þáttunum.
Meðaltals áhorf á þættina, á meðan þeir voru í sýningu var tuttugu og tvö prósent.
Eva Ástrún Albertsdóttir kemur fersk inn í stað Heiðars sem kynnir. 3 af 13 heimilum verða valin í stórtækar breytingar í þættinum Innlit/útlit. Þessi þáttaröð er sú síðasta af þættinum Allt í drasli.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.