Remove ads
íslensk fjölmiðlakona From Wikipedia, the free encyclopedia
Þóra Arnórsdóttir (f. 18. febrúar 1975 í Reykjavík) er íslensk fjölmiðla- og heimildamyndagerðarkona og upplýsingafulltrúi. Hún starfað í fjölmiðlum frá árinu 1998 til 2023. [1] fyrst í útvarpi en síðan sem sjónvarpsfréttamaður um árabil. Þóra starfaði sem umsjónarmaður og síðar ritstjóri Kastljóss[2] á RÚV á árunum 2009-2017. Hún hefur verið ritstjóri Kveiks, fréttaskýringaþáttar RÚV, frá því að þátturinn hóf göngu sína árið 2017.[3]
Þann 4. apríl 2012 tilkynnti hún forsetaframboð sitt gegn sitjandi forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni.[4] Hún hlaut um þriðjung atkvæða en Ólafur Ragnar Grímsson rúman helming.[5] Framboðið skapaði töluverða umræðu bæði innanlands og utan[6][7] [8][9] um kynjajafnrétti, en Þóra fæddi sitt þriðja barn, dóttur, í miðri kosningabaráttunni.[10]
Þóra er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, er með B.A. gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Genúa á Ítalíu og M.A. gráðu í alþjóðastjórnmálum og þróunarhagfræði frá Johns Hopkins University School of Advanced International Studies (SAIS) í Bologna, Ítalíu og Washington, D.C., Bandaríkjunum. Hún var valin Yale World Fellow árið 2014.[11][12] „Verkefni Yale World Fellows er að rækta og valdefla net alþjóðavæddra leiðtoga sem eru staðráðnir í að gera heiminn að betri stað,“ segir um verkefnið á heimasíðu þess.[13]
Þóra hefur meðal annars gert heimildarþáttaröðina Hrunið (2009)[14], myndina Útlagar (2009), um Dalai Lama og tíbetskt samfélag á Indlandi, Inndjúpið (2013), þáttaröð um síðustu bændurna við Ísafjarðardjúp og Brautryðjendur (2014), þar sem rætt er við íslenskar konur sem ruddu brautina á ýmsum sviðum mannlífsins. Hún stýrði einnig spurningaþættinum Útsvari ásamt Sigmari Guðmundssyni í 10 ár, 2007-2017. Allir þættirnir hafa verið tilnefndir til Eddu-verðlauna.
Þóra var tilnefnd sem sjónvarpsmaður ársins árin 2007, 2010,[15] 2011 og 2012 og fékk áhorfendaverðlaun ársins 2012.[16] Hún var einnig tilnefnd til Blaðamannaverðlaunanna 2009 og 2010.[17]
Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur einnig hlotið þrenn Edduverðlaun, í flokki frétta-og viðtalsþátta og sem sjónvarpsefni ársins.[18]
Árið 2023 hætti Þóra hjá Rúv og hóf störf sem forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun.[19]
Sambýlismaður Þóru er Svavar Halldórsson (f. í Vestmannaeyjum, 10. apríl 1970). Þau eiga þrjú börn og þrjár dætur úr fyrra sambandi hans.[20] Faðir Þóru var Arnór Hannibalsson (1934-2012), heimspekiprófessor.[21] Móðir hennar var Nína Sæunn Sveinsdóttir (1935-2018), viðskiptafræðingur og framhaldsskólakennari.[22]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.