Óskar 2. (Oscar Fredric, 21. janúar 18298. desember 1907) var konungur Svíþjóðar frá 1872 til dauðadags, konungur Noregs frá 1872 til 1905 og hertogi af Austur-Gautlandi.

Staðreyndir strax
Skjaldarmerki Bernadotte-ætt Svíakonungur
Bernadotte-ætt
Thumb
Óskar 2.
Ríkisár 18. september 1872 – 8. desember 1907 (í Svíþjóð)
18. september 1872 – 7. júní 1905 (í Noregi)
SkírnarnafnOscar Fredrik
KjörorðBrödrafolkens väl (til 1905)
Sveriges väl (frá 1905)
Fæddur21. janúar 1829
 Drottningarhólmahöll, Stokkhólmi, Svíþjóð
Dáinn8. desember 1907 (78 ára)
 Stokkhólmi, Svíþjóð
GröfRiddarahólmskirkjunni
UndirskriftThumb
Konungsfjölskyldan
Faðir Óskar 1.
Móðir Jósefína af Leuchtenberg
EiginkonaSoffía af Nassau
BörnGústaf 5.
Oscar Bernadotte
Karl prins
Eugen prins
Loka

Óskar var þriðji sonur Óskars 1. Svíakonungs og konu hans Jósefínu af Leuchtenberg. Hann var því ekki alinn upp til ríkiserfða, heldur gekk hann í sjóherinn og varð sjóliðsforingi og skrifaði bækur um sjóhernað, auk þess sem hann samdi ljóð og gaf út ljóðabók og fleiri rit. Hann stundaði einnig nám í stærðfræði við Uppsalaháskóla og var heiðursfélagi í sænsku vísindaakademíunni.

Þegar Óskar 1. dó 8. júlí 1859 og Karl 15., elsti sonur hans, tók við varð Óskar ríkisarfi því bróðir hans átti ekki son á lífi. Hann átti að vísu eina dóttur, Lovísu, en konur áttu ekki erfðarétt í Svíþjóð samkvæmt stjórnarskránni frá 1809. Næstelsti bróðir þeirra, Gústaf prins, hafði dáið barnlaus. Óskar átti sjálfur son og ríkiserfðirnar voru þvi tryggðar, svo að ekkert varð úr hugmyndum um að breyta stjórnarskránni og gera Lovísu arfgenga.

Óskar 2. tók því við ríkjum þegar bróðir hans lést 18. september 1872. Hann hafði mikinn áhuga á utanríkismálum og var mikill aðdáandi Otto von Bismarck Þýskalandskanslara. Hann reyndi að koma á bandalagi Skandinavíu, Þýskalands og Ítalíu og hugsanlega einnig Bretlands. Stærsti ósigur hans var sambandsslitin við Noreg 1905 en hann reyndi mikið til að viðhalda konungssambandinu, heimsótti Noreg árlega eða oft á ári og talaði norsku reiprennandi.

Fjölskylda

Óskar giftist Soffíu af Nassau 6. júní 1857. Synir þeirra voru:

  • Gústaf 5. (1858-1950), konungur Svíþjóðar.
  • Oscar Bernadotte (1859-1953), sem þurfti að afsala sér konunglegum titlum og erfðatilkalli vegna hjónabands síns. Hann var faðir sænska diplómatans Folke Bernadotte.
  • Karl prins (1861-1951), hertogi af Vestur-Gautlandi.
  • Eugen prins (1865-1947), hertogi af Närke.

Heimildir


Fyrirrennari:
Karl 15.
Svíakonungur
(18721907)
Eftirmaður:
Gústaf 5.


Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.