Ísafjarðardjúp

fjörður á Vestfjörðum From Wikipedia, the free encyclopedia

Ísafjarðardjúp
Remove ads
Remove ads

Ísafjarðardjúp heitir einn dýpsti fjörður á Íslandi og er hann eitt megineinkenni Vestfjarða enda sker hann næstum Vestfjarðarkjálkan sundur. Oft er nafn fjarðarins stytt og hann nefndur Djúpið. Í eldri heimildum er allur fjörðurinn nefndur Ísafjörður en Ísafjarðardjúp hétu hinir djúpu álar sem ganga út úr firðinum. Ísafjarðardjúp er um 20 km breitt við mynni þess, á milli Grænuhlíðar og Óshlíðar en er innar um 7 til 10 km að breidd. Frá mynni Djúpsins inn í botn innsta fjarðarins, Ísafjarðar, er um 75 km.[1]

Thumb
Fjallið Hestur séð frá eynni Vigur
Thumb
Arngerðareyri við Ísafjörð
Thumb
Ísafjarðardjúp
Thumb
Firðir, þorp, eyjar og fjöll við Ísafjarðardjúp

Inn úr Ísafjarðardjúpi ganga margir aðrir firðir og víkur; sunnan við Djúpið eru Bolungarvík, Skutulsfjörður, Álftafjörður, Seyðisfjörður, Hestfjörður, Skötufjörður, Mjóifjörður, Vatnsfjörður, Reykjarfjörður, Ísafjörður. Norðan Djúpsins er Kaldalón, Langadalsströnd og Snæfjallaströnd. Norðan við sjálft Djúpið eru Jökulfirðir.

Við Djúpið standa fjórir þéttbýlisstaðir; Bolungarvík, Hnífsdalur (hluti Ísafjarðarbæjar), Ísafjörður (við Skutulsfjörð) og Súðavík (við Álftafjörð).

Þrjár eyjar eru á Djúpinu; Æðey, Vigur og Borgarey.

Remove ads

Tilvísanir

Loading content...
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads