William Cavendish-Bentinck, hertogi af Portland
From Wikipedia, the free encyclopedia
William Henry Cavendish-Bentinck, þriðji hertoginn af Portland (14. apríl 1738 – 30. október 1809), var breskur stjórnmálamaður úr röðum Vigga og Íhaldsmanna sem starfaði seint á georgíska tímabilinu. Hann var kanslari Oxford-háskóla og tvisvar forsætisráðherra Bretlands, árið 1783 og aftur frá 1807 til 1809. Þetta 24 ára hlé milli ráðherratíða hans er hið lengsta af öllum forsætisráðherrum Bretlands. Fyrir árið 1762 var hann kallaður Markgreifinn af Titchfield. Portland bar á ævi sinni alla mögulega aðalstitla í breska aðalskerfinu: Hann var hertogi, markgreifi, jarl, vísigreifi og barón. Portland er langalangalangafi Elísabetar 2. Bretlandsdrottningar í gegnum móðurömmu hennar.
Staðreyndir strax Hertoginn af Portland, Forsætisráðherra Bretlands ...
Hertoginn af Portland | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 2. apríl 1783 – 19. desember 1783 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 3. |
Forveri | Jarlinn af Shelburne |
Eftirmaður | William Pitt yngri |
Í embætti 31. mars 1807 – 4. október 1809 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 3. |
Forveri | William Grenville |
Eftirmaður | Spencer Perceval |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 14. apríl 1738 Nottinghamshire, Englandi |
Látinn | 30. október 1809 (71 árs) Westminster, Englandi |
Þjóðerni | Breskur |
Stjórnmálaflokkur | Viggar, Íhaldsflokkurinn |
Maki | Dorothy Cavendish (g. 1766; d. 1794) |
Börn | 4 |
Háskóli | Christ Church (Oxford) |
Undirskrift |
Loka