![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d4/Warren_Buffett_at_the_2015_SelectUSA_Investment_Summit_%2528cropped%2529.jpg/640px-Warren_Buffett_at_the_2015_SelectUSA_Investment_Summit_%2528cropped%2529.jpg&w=640&q=50)
Warren Buffett
Bandarískur fjárfestir / From Wikipedia, the free encyclopedia
Warren Edward Buffett (f. 30. ágúst 1930) er bandarískur athafnamaður, fjárfestir og mannúðarvinur sem er formaður og framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Berkshire Hathaway. Vegna mikillar velgengni sinnar í fjárfestingum er Buffett einn frægasti fjárfestir í heimi. Hann er stundum kallaður „véfréttin frá Omaha“ vegna mikillar forsjálni sinnar í fjárfestingum. Í desember 2023 voru eignir hans metnar upp á 120 milljarða Bandaríkjadala, sem gerði hann að níunda ríkasta manni í heimi.
Staðreyndir strax Fæddur, Þjóðerni ...
Warren Buffett | |
---|---|
![]() Warren Buffett árið 2015. | |
Fæddur | 30. ágúst 1930 (1930-08-30) (93 ára) |
Þjóðerni | Bandarískur |
Menntun | Pennsylvaníuháskóli Háskólinn í Nebraska (BS) Columbia-háskóli (MS) |
Þekktur fyrir | Að stofna Berkshire Hathaway og fyrir góðgerðastörf |
Flokkur | Demókrataflokkurinn |
Maki | Susan Thompson (g. 1952; d. 2004) Astrid Menks (g. 2006) |
Börn | 3 |
Undirskrift | |
![]() |
Loka